fimmtudagur, 4. júní 2009

ferlega drusluleg

búin að vera með ógeðslega kvefpest í viku. Eldrautt og hálf flagnað nef af miklum snýtingum, hálfgerðan reykingarhósta og ferlega hálsbólgu. Náði að smita kallinn, pabba og Pál bróður líka, mjög skemmtilegt. Sem betur fer, 7,9,13, hafa börnin ekki fengið neitt að ráði. Smá hnerra og eymsli í hálsi. En það er eins gott að þetta fari ekki seinna en á morgun þar sem Telma og Emilía eru mættar á skerið og getum við ekki beðið eftir að fá að knúsa þær og kynnast Emilíu litlu.

Svo fer alveg að skella á sumarfrí, ekki leiðinlegt.

mánudagur, 13. apríl 2009

sælan brátt búin í bili

jamm það er víst vinna á morgun, bara fjör þar sem allir hafa sjálfsagt borðað fullt af páskaeggjum og eru því með orma í rassinum. Svo hitti ég Baldur sjúkraþjálfara á morgun, ekki hitt hann í viku svo það verður gaman að sjá hvernig ég verð. Hef nefnilega ekki dugleg að gera æfingarnar mínar og farið of lítið að labba en fór þó í sund.

Að vanda eyddum við páskunum á bestasta stað í heimi, sveitinni hjá pabba. Bara yndislegt og nóg að gera að vanda. Fara í fjárhúsin og gefa rollunum og knúsa litlu lömbin, bara frábært. Enda líður börnunum og kallinum hvergi betur en í sveitinni. Að hlusta á niðinn í fossinum mínum og vakna við fuglasöng á morgnanna, I love it.

Svo voru nú líka mínar yndislegu systur og þeirra fylgifiskar í sveitinni svo það var bara fjör, vantaði bara Pál bróðir og þá hefði allt stóðið verið mætt heim.

Skelltum okkur í jeppaferð í geggjuðu gluggaveðri, þ.e. heiðskírt og sól en hífandi rok.

Fengum okkur að borða á Systrakaffi að vanda en var frekar fámennt í þetta sinn, bara bræðurnir, Steini og við Magnús. Man ekki hversu lengi við höfum gert það að hittast á Systrakaffi á laugardeginum og borðað saman, bara gaman að hittast aðeins og kjafta og borða frábæru pizzurnar sem þar eru á boðstólnum.

Jæja kallinn farin að grilla handa mér lambalundir svo það er best að fara og leggja á borðið.

laugardagur, 7. mars 2009

nokkrar línur


er bara nokkuð góð þessa daganna. Hef passað mig voða vel og verið dugleg að taka á málunum þegar lægðirnar hafa sótt að, enda á ég frábæran kall sem er svo duglegur að hjálpa mér.
Er hjá Baldri sjúkraþjálfara þessa daganna og er hann að reyna lappa upp á herðarnar og höfuðið á mér. Búið að vera ansi vont en alveg þess virði þar sem ég hef ekki verið með hausverk í nokkra daga, 7,9,13.
Telma mágkona, Gummi og bumbudaman flutt út til Berlínar og ekki laust við ég að ég sé komin með "heimþrá" til Þýskalands. Lenti í að hringja fyrir þau til að ath með leiguíbúðir og fékk þvílíkt kikk út úr því að tala þýsku aftur eftir allan þennan tíma.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, vinna, sofa, éta. Börnin að gera hvort annað og okkur foreldranna brjáluð og bara fjör á heimilinu.
Svo er stefnan sett á fjöll á morgun, verður voða gott að komast aðeins í burtu frá öllu ;o)

sunnudagur, 11. janúar 2009

letilíf

"ég sá mömmu kyss í gær" heyrðist úr herbergi dótturinnar í morgun rétt upp úr kl. 8 í morgun. Ekkert betra en að vakna upp með bros á vör. Svo dundaði hún sér við að syngja og tralla hálftíma í viðbót og kallaði svo til að athuga hvort hún mætti koma fram. Ekki var bróðir hennar jafn hrifinn að vera vakinn svona upp og bað okkur vinsamlegast um að loka hurðinni inn til sín. Erum alltaf jafn hissa á að hún skuli aldrei koma fram nema kalla fyrst. Þegar hún fer að sofa á kvöldin upp úr kl. 20 liggur hún kannski til kl. 21:30 að vesenast eitthvað. Gera æfingar í rúminu, kjafta við sjálfan sig eða bangsana, syngja og fleirra. En aldrei kemur hún fram eða fer úr rúminu. Við heyrum hana jú stundum læðast til að sækja sér eitthvað dót í skúffurnar en kemur aldrei fram. Mjög merkilegt finnst okkur, sér í lagi þar sem hún heyrir stundum í Kára á röltinu og hún hermir nú eftir öllu sem hann gerir.

Helgin búin að vera voða róleg og fjölskylduvæn. Fórum til Rvíkur í gær þar sem keypt var úlpa á drenginn og svo brunuðum við í níræðis afmæli til ömmu systur Magnúsar. Þar kom saman föðurfjölskyldan hans og stærstan hluta hennar var ég að sjá og hitta í fyrsta skipti. Og komin tími til þar sem ég hef verið tengd fjölskyldunni í 13 ár. Hef jú hitt systkini tengdapabba og sum börnin þeirra en ekki öll. En þetta var voða gaman og börnin mín voru rosa stillt og góð þó þarna væri eiginlega bara ókunnugt fólk og ræðuhöld. En þau sátu svo til allan tímann róleg í sætunum sínum og ekki skemmdi svo fyrir að fá kökur og flottheit.

Í dag er svo búið að liggja í leti, rétt svo nennti að klæða mig til að skreppa í bónus. Var ágætt að taka lífinu með ró enda var ég alveg búin eftir fyrstu vinnuviku ársins. Svo er bara vinna á morgun. Finnst fínt að fá rútínu vinnuvikunar. Er algjör skussi um helgar að taka olíuna mína og borða réttan morgunmat. Má þakka fyrir að muna eftir að taka magatöflurnar um helgar.

sunnudagur, 4. janúar 2009

Gleðilegt nýtt ár!


Jæja þá er árið 2009 gengið í garð. Búin að vera fara yfir árið 2008 og held ég geti sagt það hafi verið mjög rólegt ár hjá okkur. Árið 2008 var læknis ár hjá mér, búin að heimsækja lækna af ýmsum toga og sem betur fer hefur það skilað ágætis árangri, nógu dýrt hefur það allavega verið. Síðari hluti ársins var ansi þungur hjá mér, miklar og djúpar lægðir hafa legið yfir mér en ég sé orðið til sólar núna. Hefst allt þegar ég hef svona yndislegan og hjálpsaman mann.





Ferðuðumst óvenju lítið árið 2008, höfum aldrei keyrt eins lítið öll þessi 13 ár okkar og segir bensínverðið að mestu til um það. Fórum upp á Akranes þar sem frumburðurinn keppti á sínu fyrsta stóra móti í fótbolta og skemmtum við okkur öll mjög vel saman þar. Eyddum svo stærstum hluta sumarsins í sveitinni góðu. Þar fórum við í bíltúra og höfðum það voða gott.



Ekki setjum við okkur nein áramótaheit þó svo að við séum með viss atriði í huganum sem okkur langar að reyna koma í framkvæmd. Þýðir ekkert fyrir okkur að koma með nein heit, þau eru nú bara til að brjóta. En okkur langar að rækta betur samband við fjölskylduna og vini. Hafa meira samband við fólkið okkar og kíkja í heimsóknir. Ég ÆTLA að láta mér líða vel og stefni á að reyna taka mig í gegn og koma mér meira út úr húsi til að hreyfa mig. Ætlum að reyna vera bjartsýn, svona miða við hvernig ástandið er, og reyna að hugsa ekki of mikið um stöðu okkar og fjármál. Erum, allavega ennþá, bæði með vinnu og náum enn að borga af öllu.

Og svo er stefnan sett á allavega eina jeppaferð á árinu :o)

miðvikudagur, 10. desember 2008

long time no skrif

uss uss uss búin að vera svo löt að ég hef ekki nennt að skrifa hér inn. Alltaf fundið mér eitthvað annað að gera eins og að eyða tímanum á facebook, bara gaman.
Jamm ýmislegt búið að gera síðan síðast og tveimur jöxlum fátækari. Það var úr því ágætis ævintýri og minnir ég hafi farið 4 vikur í röð til tannsa. Fékk ígerð og skemmtileg heit í skurðinn. Alltaf jafn heppin!

Ekki enn komin í jólagírinn og það finnst mér alveg hræðilegt, eins og mér finnst gaman að taka upp skrautið mitt og gera húsið fínt en í ár er þetta eitthvað voða erfitt. Ekki einu sinni farin að baka, en þó búin að ákveða hvað baka skal. Helgin verður tekin í bakstur, á laugardaginn koma Klara og Alma og vonandi Telma og Gummi(þið hafið ekkert betra að gera !!!) Þá ætlum við að baka og skreyta piparkökur og á sunnudaginn koma mínar systur og mútta í bakstur.
Er einnig að rembast við að klára þessar jólagjafir sem ég bý til sjálf, búin að gera jólakortin á bara eftir að skrifa inn í þau. Á svo eftir að skrifa á jólakortin fyrir pabba en er enga stund að rumpa því af. Erum að verða búin að versla allar jólagjafirna, þótt fyrr hefði nú verið.

Búin að liggja heima í dag, fékk svona skemmtilega í magann. Held þetta sé ekki gubbupest, er hrædd um að nýju magalyfin séu ekki að virka betur en þetta. En í gær borðaði ég mat með rjóma og smurosti í og lá í alla nótt að drepast úr verkjum og kastaði á endanum upp. Geri kannski aðra tilraun með þetta um helgina og sé hvernig ég verð þá.

Látum þetta nú duga í bili.

laugardagur, 25. október 2008

.....

kom að því að ég nenni að skrifa hér inn. Alltaf nóg að gera hér eins og annarsstaðar.
Í gær og svo á mánudaginn er ég í vetrarfríi og stóð til að eyða því í sveitinni. En dóttirin fékk ælupest á fimmtudagskvöldið svo hér hefur verið sofið lítið og grey þvottavélin þvær og þvær.

Á fimmtudaginn á að taka báða neðri endajaxlanna hjá mér. Get nú ekki sagt ég hlakki til en allt betra en að vera eins og ég er núna. Komst sýking í tannholdið hjá hægri jaxlinum svo ég er öll stökkbólgin og aum og verkjar alveg svakalega. Svo núna bryð ég pillur og vonast til að þetta hjaðni vel svo hægt verði að skera. Get allavega ekki beðið eftir að þetta verði búið og geta farið að borða almennilegan mat aftur.